Heimilisþrif
Sparaðu þér tíma og orku

Við bjóðum upp á almenn þrif, ítarleg þrif og flutningsþrif fyrir einstaklinga ásamt allskonar aukaþjónustu. Stakt skipti eða regluleg þrif, við mætum á réttum tíma og bjóðum upp á samkeppnishæft verð.

Algengast er að panta almenn regluleg þrif vikulega til mánaðarlega, með ítarlegum þrifum þar á milli. Síðan er ekkert mál að panta aukaþjónustur eftir þörfum.

Fá tilboð

Almenn þrif

Í almennum þrifum er farið yfir öll helstu yfirborð á heimilinu. Þessi pakki hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja tryggja reglulegt hreinlæti án mikillar fyrirhafnar.

  • Þurrkað af helstu yfirborðum
  • Gólf ryksuguð og skúruð
  • Þurrkað af gluggakistum
  • Ruslafötur tæmdar
  • Í eldhúsi eru vaskur, blöndunartæki og helluborð þrifin, þurrkað er af borðum og innréttingum
  • Á baðherbergi eru vaskur, blöndunartæki, klósett og speglar þrifin, þurrkað er af innréttingum og bað/sturtu
  • Valkvæð rúmfataskipti

Ítarleg þrif

Öll íbúðin tekin ítarlega í gegn!
Við mælum með ítarlegum þrifum árlega til ársfjórðungslega. Til viðbótar eru í boði valkvæðar aukaþjónustur eftir því sem hentar, svo þú greiðir ekki fyrir meiri þjónustu en þú þarft á að halda. Sniðið að þínum þörfum.

Öll rými

  • Þurrkað af öllum yfirborðum
  • Gólf ryksuguð og skúruð
  • Gluggakistur þrifnar
  • Sófi ryksugaður
  • Ruslafötur tæmdar
  • Ryk tekið af listum, ofan af loftljósum, körmum, og hurðum

Eldhús

  • Eldhúsborð þrifin
  • Skápahurðir þrifnar
  • Örbylgjuofn þrifinn
  • Helluborð skrúbbað
  • Vaskur og blöndunartæki skrúbbuð og fægjuð
  • Hægt að bæta við þrifum á ísskáp og ofni

Baðherbergi

  • Sturta þrifin og skrúbbuð
  • Sturtugler þrifið
  • Vaskur og blöndunartæki skrúbbuð og fægjuð

Svefnherbergi

  • Skipt á rúmfötum
  • Höfuðgafl ryksugaður
  • Skápar þrifnir utan á og ofan á

Aukaþjónustur

Valkvæðar aukaþjónustur, hvort sem þú kaupir almenn þrif eða ítarleg þrif. Sniðið að þínum þörfum.

  • Gluggaþvottur
  • Þrif á bakaraofni
  • Þrif á ísskáp
  • Þrif innan í eldhússkápum
  • Þrif innan í fataskápum
  • Djúphreinsun
  • Rúmfataskipti
Flutningsþrif

Flutningsþrif

Allt sem ítarleg þrif býður upp á til viðbótar við allar aukaþjónusturnar, og meira.
Við tökum ábyrgð á að íbúðin sé afhend tandurhrein!

  • Þurrkað af öllum yfirborðum
  • Gólf ryksuguð og skúruð
  • Gluggaþvottur
  • Helluborð skrúbbað
  • Eldhúsvaskur og blöndunartæki skrúbbuð og fægjuð
  • Þrif á bakaraofni
  • Þrif innan í ísskáp
  • Þrif innan í eldhússkápum
  • Klósett og sturta skrúbbuð
  • Baðherbergisvaskur og blöndunartæki skrúbbuð og fægjuð
  • Sturtugler þrifið
  • Þrif innan í öllum skápum og innréttingum
  • Þurrkað af listum, gereftum, körmum, hurðum, og loftljósum
  • Valkvæð veggjaþrif
Opnunartími

Skrifstofa mán-fös 08.00-17.00

Þvottahús mán-lau 10.00-16.00