Hvað bjóðum
við upp á?

Við bjóðum upp á alhliða hreingerningarþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Stakt skipti eða regluleg þrif, við mætum á réttum tíma og bjóðum upp á samkeppnishæft verð

Fá tilboð

Fyrirtækjaþjónusta

Fyrirtækjaþjónusta

Við bjóðum upp á faglega og áreiðanlega ræstiþjónustu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Þjónustan er skipulögð með þarfir hvers rekstrar í huga, hvort sem um er að ræða daglegar ræstingar eða sérsniðnar lausnir.

Við leggjum áherslu á stöðug gæði, góð samskipti og snyrtilegt vinnuumhverfi sem styður við vellíðan starfsfólks og góða ímynd fyrirtækisins.

Auk reglulegra þrifa sjáum við um umsjón og áfyllingu á hreinlætisvörum, svo sem sápu, pappír og öðrum rekstrarvörum. Með því einföldum við reksturinn og tryggjum að allt sé á sínum stað.

Við vinnum í nánu samstarfi við viðskiptavini og leggjum okkur fram um að veita trausta og sveigjanlega þjónustu sem hægt er að treysta á til lengri tíma.

Þvottaþjónusta

Við rekum þvottahús á höfuðborgarsvæðinu og þjónustum fyrirtæki, hótel og gistiheimili af öllum stærðum.

Við leggjum áherslu á áreiðanleika, hraða og vönduð vinnubrögð.
Við tökum að okkur reglulegan þvott á rúmfötum, handklæðum, tuskum og öðrum textíl, ásamt því að bjóða upp á sveigjanlegar lausnir sem henta þínum rekstri.

Hvort sem um er að ræða daglega þjónustu eða eftir þörfum, þá tryggjum við að allt skili sér hreint, ferskt og tilbúið til notkunar.

Húsfélög

Húsfélög

Við bjóðum upp á regluleg þrif fyrir sameignir af öllum stærðum – stigaganga, innganga og önnur sameiginleg svæði.

Við leggjum áherslu á snyrtilegt og vel viðhaldið umhverfi sem eykur vellíðan íbúa og góða fyrstu sýn.
Auk reglulegra þrifa bjóðum við upp á teppahreinsun, mottuleigu, gluggaþvott og djúphreinsun eftir þörfum.

Þjónustan er sérsniðin að hverju húsfélagi og framkvæmd í góðu samráði.

Einstaklingar

Við bjóðum upp á fjölbreytta ræstiþjónustu fyrir heimili, hvort sem um er að ræða regluleg þrif eða einstaka þjónustu.

Í boði eru almenn þrif, ítarleg þrif og flutningsþrif, þar sem við sjáum til þess að heimilið sé hreint og tilbúið fyrir næsta kafla.
Einnig bjóðum við upp á ýmsa aukaþjónustu eftir þörfum, svo sem gluggaþvott eða sértæk þrif.

Við leggjum áherslu á traust, fagmennsku og góða þjónustu á hverju heimili.

Djúphreinsun

Djúphreinsun hentar þegar þörf er á ítarlegri og kraftmeiri hreinsun en venjuleg þrif ná yfir.

Við tökum að okkur djúphreinsun á stigagöngum, teppum, sófum og öðrum húsgögnum, ásamt öðrum svæðum þar sem óhreinindi safnast upp með tímanum.
Notast er við vandaðar aðferðir og búnað sem skilar sýnilegum árangri.

Þessi þjónusta hentar bæði heimilum og fyrirtækjum sem vilja endurnýja og fríska upp á rýmið sitt.

Opnunartími

Skrifstofa mán-fös 08.00-17.00

Þvottahús mán-lau 10.00-16.00