Vel viðhaldnar sameignir skapa betra umhverfi fyrir íbúa og gesti, auka vellíðan og stuðla að betra viðhaldi fasteignarinnar til lengri tíma.
Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu fyrir húsfélög á höfuðborgarsvæðinu og sjáum um allt frá reglulegri ræstingu sameigna til sérhæfðra hreinsiverkefna. Markmið okkar er að húsfélög geti treyst á einn þjónustuaðila fyrir umhirðu sameignarinnar.


Við bjóðum upp á reglulega ræstingu stigaganga, ganga, anddyra, lyfta og annarra sameiginlegra svæða. Tíðni þjónustunnar er ákveðin í samráði við húsfélagið og getur verið vikuleg, hálfsmánaðarleg eða eftir þörfum.
Við leggjum áherslu á stöðug gæði, áreiðanleika og góð samskipti við stjórnendur húsfélaga.
Auk reglulegrar ræstingar bjóðum við upp á fjölbreytt sérverkefni til að halda sameigninni í sem bestu ástandi.
Þar má nefna teppahreinsun, djúphreinsun sameigna, geymsluþrif, gluggaþrif, tunnuskipti, þrif á sorpsvæðum og háþrýstiþvott á stéttum, inngöngum og öðrum utandyraflötum.

Þarfir húsfélaga eru mismunandi eftir stærð fasteigna og umfangi sameignar. Við vinnum með hverju húsfélagi að þjónustuleið sem hentar best hverju sinni, hvort sem um er að ræða reglubundna þjónustu, einstök verkefni eða heildarlausn fyrir umhirðu fasteignarinnar.
Hafðu samband og við útbúum tilboð sem er sniðið að þínu húsfélagi.

Sendu okkur upplýsingar um fasteignina og þær þjónustur sem óskað er eftir. Við höfum samband og útbúum tilboð sem hentar þörfum húsfélagsins.
Skrifstofa mán-fös 08.00-17.00
Þvottahús mán-lau 10.00-16.00