Persónuvernd

Almennt

  • Hrein Snilld leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina.
  • Hrein Snilld leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlögin).
  • Hrein Snilld leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sér takmörkuð, að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem fyrirtækið ber að veita viðskiptavinum.
  • Hrein Snilld leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um viðskiptavini og að sú vinnsla sé gerð á ábyrgan, öruggan eða löglegan hátt.

Persónuupplýsingarnar

Hrein Snilld ábyrgist;

Að nota aðeins persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi.

Að þegar deilt er persónuupplýsingum viðskiptavina með þriðja aðila, í lögmætum tilgangi, t.d. vegna tæknilegs viðhalds eða þjónustu vegna greiðslu (hér með þriðju aðilar), skuldbindur Hrein Snilld að vinnsla slíkra upplýsinga takmarkist við þá þjónustu sem inna skal af hendi.

Að tryggja fullan trúnað þriðja aðila við vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga.

Að viðskiptavinir Hrein Snilld séu eigendur að sínum eigin persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki Hrein Snilld.

Tölfræðilegar samantektir

Hrein Snilld áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar.

Heimasíða Hrein Snilld ( www.hreinsnilld.is )

Á Heimasíðu (vefsvæði), kann Hrein Snilld að safna tæknilegum upplýsingum um notkun, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á vefsvæðinu, heildartímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra. Engum persónugreinanlegum upplýsingum skal safnað saman við slíka vinnslu.

Upplýsingar til 3. aðila

Hrein Snilld skuldbindur sig að ekki afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar viðskiptavina Hrein Snilld til þriðja aðila nema fyrirtækinu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt skriflegri beiðni viðskipta.

Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Hrein Snilld enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfeldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Hrein Snilld.

Hrein Snilld ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

Lög og lögsaga

Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.

Breytingar

Hrein Snilld áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu Hrein Snilld.

Tengiliðaupplýsingar

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu Hrein Snilld skaltu hafa samband við okkur hér:  [email protected]

Opnunartími

Skrifstofa mán-fös 08.00-17.00

Þvottahús mán-lau 10.00-16.00